Hættið þið að væla!

Nú las ég yfir þessi 4 blogg um þessa grein og rakst á eitt komment um að núna yrði það bara til hátíðarbrigða að skella sér í sund.

Almáttugur!

Það er ennþá hægt að kaupa 10 skipta klippikort og gamla verðið er 2500kr. Þetta er bara ekki neitt! 

Ég bý í Svíþjóð og hér kostar 100kr (sænskar) eitt skipti í sund. Það er ca. 1700kr

10 skipta kort kostar 800kr  eða 13.600kr íslenskar! Ég held að það myndi nú heyrast hátt í fólki ef það þyrfti að borga svona pening fyrir að fara í sund. 

Og í þokkabót að þá er bara EINN heitur pottur í sundlauginni sem er næst mér og þarf maður að fara uppúr honum á 10 min fresti svo hann geti hreinsað sig. 

 Hér fer enginn í sund nema ætla sér að vera að minnsta kosti í 3klst ... það er ekkert skrepp eftir vinnu nema þig langi að blæða peningum. 

Hættið þið bara að kvarta og kveina. Jú lágmarkslaun eru lægri hjá okkur en það hafa nú allir efni á því að fara í sund held ég.


mbl.is Sundferðin kostar nú 450 krónur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Davíðsson

Sammála þér þar. Nóg komið af væli. Við erum fullorðið fólk ansk.. hafi það.

Það er hvergi ódýrara að fara í sund en á Íslandi og hvergi betra. Hér er gjaldskráin í Kópavogi og í Reykjavík.

Árni Davíðsson, 2.1.2011 kl. 23:46

2 Smámynd: Pétur Eyþórsson

Fjarlægðin gerir fjöllin blá.

Pétur Eyþórsson, 3.1.2011 kl. 11:24

3 Smámynd: Árni Davíðsson

Ætli það sé ekki á báða bóga.

Árni Davíðsson, 3.1.2011 kl. 22:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Dagny

Höfundur

Dagný Guðmundsdóttir
Dagný Guðmundsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 282

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 56
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband